Árbær, Grindavík, Ýmir og Ægir eru öll komin áfram í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins.
Árbæingar unnu Létti í miklum markaleik sem lauk með 5-3 sigri Árbæinga.
Staðan var 2-2 í hálfleik og komust heimamenn í Létti yfir snemma í þeim síðari, en Árbæingar kláruðu leikinn á tuttugu mínútna kafla í þeim síðari með mörkum frá Jordan Chase Tyler, Agli Helga Guðjónssyni og Brynjari Óla Axelssyni.
Árbær mun mæta Ægi í 32-liða úrslitum en Ægismenn unnu Reyni Sandgerði, 2-0. Kristinn Ásgeir Þorbergsson skoraði bæði mörk Ægis undir lok leiks.
Ýmir slátraði KFS með tíu mörkum gegn engu í Kórnum. Andri Már Harðarson, Breki Ottósson og Björn Ingi Sigurðsson voru allir með tvö á haus.
Ýmismenn munu mæta Aftureldingu eða ÍR í 32-liða úrslitum.
Grindavík vann þá 2-0 sigur á Elliða. Bæði mörk Grindvíkinga komu í seinni hálfleiknum.
Rúnar Ingi Eysteinsson skoraði á 47. mínútu og gerði Valur Þór Hákonarson seinna markið undir lokin.
Það verður því suðurnesjaslagur af bestu gerð í 32-liða úrslitum en Keflavík verður andstæðingur Grindavíkur.
Úrslit og markaskorarar:
Léttir 3 - 5 Árbær
1-0 Mikael Máni Hermannsson ('10 )
1-1 Stefán Bogi Guðjónsson ('27 )
2-1 Atli Auttaphon Onsaikaew ('38 )
2-2 Jordan Chase Tyler ('43 )
3-2 Björn Ómar Úlfarsson ('47 )
3-3 Jordan Chase Tyler ('62 )
3-4 Egill Helgi Guðjónsson ('68 )
3-5 Brynjar Óli Axelsson ('83 )
Ýmir 10 - 0 KFS
1-0 Andri Már Harðarson ('5 )
2-0 Björn Ingi Sigurðsson ('15 )
3-0 Theodór Unnar Ragnarsson ('19 )
4-0 Björn Ingi Sigurðsson ('23 )
5-0 Breki Ottósson ('41 )
6-0 Breki Ottósson ('43 )
7-0 Andri Már Harðarson ('44 )
8-0 Kári Örvarsson ('68 )
9-0 Tómas Orri Barðason ('75 )
10-0 Lirim Ibrahimi ('82 )
Ægir 2 - 0 Reynir S.
1-0 Kristinn Ásgeir Þorbergsson ('88 )
2-0 Kristinn Ásgeir Þorbergsson ('90 )
Elliði 0 - 2 Grindavík
0-1 Rúnar Ingi Eysteinsson ('47 )
0-2 Valur Þór Hákonarson ('90 )
Athugasemdir


