Fotbolti.net
28.03.26 - 23:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mögnuð tölfræði Orra Steins - „Með helvítis löpp"

Mögnuð tölfræði Orra Steins - „Með helvítis löpp"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson sneri aftur í landsliðið eftir langa fjarveru vegna meiðsla. Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði bæði mörkin í 2-2 jafntefli gegn Kanada í æfingaleik.

Orri hefur verið gríðarlega mikilvægur fyrir liðið en hann hefur komið að sjö mörkum í síðustu sex leikjum.
Gleymist að hann er aðeins 21 árs - „Miklu yngri en maður hélt"
TENGT EFNI

Gleymist að hann er aðeins 21 árs - „Miklu yngri en maður hélt"

Lestu um leikinn: Kanada 2 - 2 Ísland
Hann skoraði í 4-2 tapi gegn Tyrklandi í þjóðadeildinni í október 2024. Hann fylgdi því eftiir með marki í 2-0 sigri á Svartfjallalandi. Hann lagði síðan upp mark Íslands á Andra Lucas Guðjohnsen í 4-1 tapi gegn Wales.

Hann skoraði síðan í báðum leikjunum gegn Kósovó í Þjóðadeildarumspilinu fyrir rúmu ári síðan. Hann hefur skorað níu mörk í 17 landsleikjum.

„Þegar fyrirliðinn kemur til baka, hann er með helvítis löpp, getur klárað færin, það er helvíti gott. Við viljum alltaf að framherjinn klári færin sín," sagði Mikael Egill Ellertsson við Fótbolta.net eftir leikinn í dag, en Mikael lagði upp seinna mark Orra í leiknum.
Mögnuð tölfræði Orra Steins - „Með helvítis löpp"
Canon

Mynd: KSÍ

Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.