Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   lau 28. mars 2026 20:23
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Eimskip
Orri skoraði tvö gegn Kanada.
Orri skoraði tvö gegn Kanada.
Mynd: KSÍ
Ísland gerði 2-2 jafntefli gegn Kanada ytra í æfingaleik í dag. Fótbolti.net ræddi við Orra Stein Óskarsson, sem skoraði bæði mörk Íslands, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Kanada 2 -  2 Ísland

„Blendnar tilfinningar. Persónulega mjög glaður að vera kominn aftur og byrja svona. Líka svekkjandi að hafa ekki náð að klára leikinn jafnvel þó að 2-2 úti á móti Kanada séu ekki verstu úrslit í heimi þá viljum við samt klára svona leiki og við vitum að við eigum að gera það," sagði Orri Steinn.

Hann skoraði bæði mörkin í fyrri hálfleik en Jonathan David skoraði bæði mörk Kanada úr vítum í seinni hálfleik.

„Þeir voru búnir að elta okkur allan leikinn og erfitt að spila svo stíga þeir upp um gír í seinni hálfleik og við náum ekki að svara nógu vel sem gerir það að verkum að þeir ná að koma leiknum í sínar eigin hendur."

Orri Steinn er í landsliðshópnum í fyrsta sinn í dágóðan tíma en hann hefur verið ansi óheppinn með meiðsli í kringum landsliðsverkefni.

„Þegar maður kemur til baka þarf ekki langan tíma til að aðlagast. Maður þekkir þessa stráka eins og lófan á hendinni sinni. Maður efast ekki um hvað þeir eru að fara gera, mér leið eins og maður hafi aldrei farið. Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut að koma hingað og spila með þessum strákum og fá að vera partur af þessu, mjög þakklátur," sagði Orri.

Hann skoraði fyrra markið þegar hann náði boltanum eftir arfaslaka sendingu til baka frá varnarmanni Kanada og seinna markið eftir laglegan undirbúning Mikaels Egils Ellertssonar.

„Þetta er einn af mínum styrkleikum, að vera rólegur undir pressu. Þó maður fái aðeins meiri tíma getur þetta verið meira stressandi. Þetta er eitthvað sem ég hef æft frá því ég var lítill, það er undir mér komið að nýta svona færi," sagði hann um fyrra markið.

„Frábær sending hjá Mikka. Upp í nær, það gerist varla flottara en það," sagði Orri um seinna markið.
Slapp
banner
banner