Fotbolti.net
28.03.26 - 10:33
Brynjar Ingi Erluson

Sveindís í banastuði í Bandaríkjunum - Skoraði glæsimark

Sveindís hefur skorað þrjú og lagt upp tvö í fyrstu þremur deildarleikjunum

Sveindís hefur skorað þrjú og lagt upp tvö í fyrstu þremur deildarleikjunum

Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Hertz
Sveindís Jane Jónsdóttir er í þrumustuði með Angel City í NWSL-deildinni í Bandaríkjunum en hún skoraði glæsimark er liðið vann Houston Dash, 2-1, í nótt.
Íslenska landsliðskonan hefur komið að fjórum mörkum í síðustu þremur leikjum sínum með Angel City og virðist ekkert geta stöðvað hana.

Angel City var 1-0 undir gegn Houston í hálfleik, en Sveindís kom liðinu aftur inn í leikinn stuttu eftir hálfleikinn með frábæru marki í samskeytin vinstra megin þegar boltinn datt fyrir hana eftir hornspyrnu.

Sveindís fagnaði markinu af mikilli innlifun og var stálheppin að meiðast ekki en hún lenti illa í fagninu. Sem betur fer fór allt vel og kom hún meira að segja að sigurmarkinu. Hún fékk boltann á hægri vængnum, keyrði inn á miðju vallarins og færði hann á samherja. Í kjölfarið var boltanum komið út hægra megin og inn á teiginn þar sem Maiara Niehues var mætt til að stanga boltann í bakið á varnarmanni Dash og á Riley Tiernan sem kom honum yfir línuna.

Stórkostleg byrjun á tímabilinu hjá Angel City sem hefur unnið alla þrjá leiki sína til þessa og er Sveindís markahæst í deildinni ásamt þeim Barbra Banda og Melissu Kossler.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.