Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   lau 28. mars 2026 21:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Eimskip
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fótbolti.net ræddi við Sverri Inga Ingason eftir 2-2 jafntefli Íslands gegn Kanada í æfingaleik í dag.

Lestu um leikinn: Kanada 2 -  2 Ísland

„Þetta var áhugaverður leikur við áhugaverðar aðstæður. Fúl útkoma, mér fannst við gera nóg til að vinna leikinn. Það sem varð okkur aðeins að falli var að við vorum ekki að vinna návígi og seinni bolta," sagði Sverrir Ingi.

„Þeir fá tvær vítaspyrnur. Ég nenni ekki að vera gera athugasemdir við dómgæsluna. Þetta var sérstakt í dag, þeir komust allavega upp með meira en við. Hann flautar bæði vítin á innan við sekúndu eftir að mennirnir féllu. Í aðdraganda fyrsta marksins keyrir vinstri bakvörðurinn Jón Dag niður. Þetta var lið sem var með læti og þeir komust upp með það."

„Við þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum. Þegar við förum í leiki sem skipta meira máli þurfum við að geta lokað svona leikjum. Þegar þú ert kominn í 2-0 á útivelli þurfum við að gera það sem leikurinn krefst (af okkur) á þeim tíma. Í dag var kannski ekki boðið upp á að halda í boltann en þá þurfum við að vinna seinni bolta og návígi. Við vorum undir í þeim bardaga en við þurfum að læra af því og gera betur."
Slapp
banner