Fotbolti.net
28.03.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Vináttulandsleikir í dag - Ísland heimsækir Kanada

Vináttulandsleikir í dag - Ísland heimsækir Kanada
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það eru ýmsir vináttulandsleikir sem fara fram í dag og í kvöld þar sem margar þjóðir eru að gera tilraunir fyrir heimsmeistaramótið sem er á dagskrá í sumar.
Kanada er ein þeirra þjóða enda er hún meðal gestgjafa á HM 2026 og leikur í riðli með Sviss, fyrrum gestgjöfum Katar og sigurvegaranum úr úrslitaleik umspilsins á milli Bosníu og Ítalíu sem fer fram á þriðjudagskvöldið.

Það verður fróðlegt að sjá hvernig Strákunum okkar tekst til gegn lærlingum Jesse Marsch.

Færeyjar spila við San Marínó í dag áður en Senegal á leik við Perú, Skotland mætir Japan og Bandaríkin taka á móti Belgíu í afar spennandi viðureign.

Í nótt kíkir Portúgal að lokum í heimsókn til Mexíkó, sem er einnig meðal gestgjafa heimsmeistaramótsins.

Leikir dagsins
14:00 Kirgistan - Madagaskar
14:00 San Marínó - Færeyjar
14:00 Suður-Kórea - Fílabeinsströndin
16:00 Senegal - Perú
16:00 Botsvana - Simbabve
17:00 Kanada - Ísland
17:00 Ungverjaland - Slóvenía
17:00 Skotland - Japan
18:00 Búrkína Fasó - Gínea-Bissaú
19:30 Bandaríkin - Belgía
00:00 Haítí - Túnis
01:00 Mexíkó - Portúgal
Vináttulandsleikir í dag - Ísland heimsækir Kanada
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.