Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 28. maí 2020 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fyrirliði Blackburn skilur ekki hvernig hann fékk veiruna
Mynd: Getty Images
Elliott Bennett, fyrirliði Blackburn, kom jákvæður úr kórónuveiruprófi og er einn af fimm í Championship deildinni sem hafa greinst með kórónuveiruna.

Bennett segist ekki skilja hvernig hann fékk veiruna en hann kom neikvæður úr veiruprófi á föstudaginn.

„Ég var í algjöru sjokki. Hvernig get ég verið neikvæður á föstudegi og jákvæður í dag þegar ég hef ekki gert neitt nema að fara út í búð með hanska og grímu," sagði Bennett.

„Mér líður vel, ég er einkennalaus. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið veiruna núna en ekki fyrir nokkrum vikum áður en leikmenn voru prófaðir. Með þessi einkenni hefði ég líklega ekki tekið eftir veikindunum og smitað útfrá mér.

„Við knattspyrnumenn erum heppnir því það er hægt að gera umhverfi okkar gríðarlega öruggt."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner