Oliver Kahn, sem tekur við sem framkvæmdastjóri Bayern München á næsta ári, segir að Jadon Sancho, kantmaður Borussia Dortmund, geti styrkt hvaða lið sem er.
Sancho, sem er tvítugur, er mjög eftirsóttur og talað hefur verið um að Bayern hafi áhuga á honum.
Kahn var í viðtali við Sky Sports og sagði þar: „Það er ekki rétt að tala um leikmannakaup núna, en auðvitað er Sancho leikmaður sem getur styrkt hvaða lið sem er, eins og aðrir leikmenn Dortmund."
„Hann er með mikla hæfileika og Dortmund hefur mjög góðan leikmann í honum. Við munum allt á réttum tíma."
Sancho kom inn á sem varamaður þegar Dortmund tapaði 1-0 fyrir Bayern síðasta þriðjudag.
Sjá einnig:
Sancho fyrstur til að koma að 30 mörkum
Athugasemdir