Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 28. maí 2022 08:40
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp: Einhverjum fannst sniðugt að þökuleggja degi fyrir leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Liverpool mætir Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld og æfðu liðin á Stade de France í gær.


Fréttamenn vöktu athygli á vallaraðstæðunum þar sem völlurinn var aðeins þökulagður tveimur dögum fyrir leik.

„Völlurinn var þökulagður í gær. Það eru ekki bestu fréttirnar en við munum æfa eins og við gerum vanalega," sagði Klopp fyrir æfingu liðsins á Stade de France.

„Það eru vanalega góðar fréttir þegar völlurinn lítur út eins og hann sé nýr. Ég sá dómarana æfa og boltinn skoppar eðlilega.

„Einhverjum fannst góð hugmynd að þökuleggja degi fyrir úrslitaleikinn. Það er sérstök hugmynd en hún gerir mig ekki pirraðan - bæði lið þurfa að keppa við sömu aðstæður þannig ég er sáttur. Real Madrid mun æfa á eftir okkur, þið munuð heyra Carlo Ancelotti segja það sama.

„Þegar maður vinnur þá er manni alveg sama hversu góður eða slæmur völlurinn var. Ég vona bara að enginn skrifi frétt um að ég hafi kvartað undan vellinum því ég er ekki að því."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner