Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
   mið 28. maí 2025 20:18
Alexander Tonini
Pistill: Pistlar á Fótbolta.net eru viðhorf höfundar og þurfa ekki endilega að endurspegla viðhorf vefsins eða ritstjórnar hans.
Fær Vestri ekki stuðning eða er Víkingur litla liðið?
Alexander Tonini
Daði Berg Jónsson í leik með Vestra.
Daði Berg Jónsson í leik með Vestra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vestri hefur komið á óvart í sumar og situr í öðru sæti einu stigi á eftir Víkingi.
Vestri hefur komið á óvart í sumar og situr í öðru sæti einu stigi á eftir Víkingi.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Á morgun klukkan 14 fer fram stærsti leikur umferðarinnar í Bestu deild karla þegar Vestri tekur á móti Víkingi Reykjavík á Kerecisvellinum.

Athygli vekur að Daði Berg Jónsson, sem leikur með Vestra á láni frá Víkingi, verður ekki í leikmannahópi heimamanna. Ástæðan er ákvæði í samkomulagi félaganna þar sem kveðið er á um að Vestri þurfi að greiða 2,5 milljónir króna vilji þeir að Daði spili. Sú upphæð hefur ekki verið greidd, og verður Daði því í stúkunni þegar liðin mætast.

Margir furða sig á þessu fyrirkomulagi og vekur það upp spurningar um tilgang og tilgangsleysi slíkra samninga. Undirritaður ákvað að skoða málið nánar og setur fram tvær hugsanlegar skýringar.

Vangavelta 1: Vestri telur einfaldlega of dýrt að greiða 2,5 milljónir króna fyrir að fá Daða Berg í leikinn – jafnvel þótt hann gæti reynst lykilmaður gegn sterku liði Víkinga.

Vangavelta 2: Víkingur Reykjavík vill með öllum ráðum koma í veg fyrir að lánsmaður þeirra spili gegn þeim og að dulin þrýstingur sé fyrir hendi

Frammistaða Daða Bergs Jónssonar með Vestra hefur vakið verðskuldaða athygli í sumar. Hann hefur verið valinn þrisvar sinnum í lið umferðarinnar í Bestu deild karla, sem undirstrikar mikilvægi hans fyrir lið Vestra.

En hvað liggur að baki ákvörðuninni um að leyfa honum ekki að spila gegn eigendum sínum?

Vangavelta 1: Skortur á fjárhagslegum stuðningi?

Vestri spilar á Kerecisvellinum, og stærsti styrktaraðili félagsins er Kerecis. Á búningum liðsins blasir nafn fyrirtækisins við öllum áhorfendum.

Kerecis var selt fyrir 180 milljarða króna fyrir tveimur árum. Til samanburðar má nefna að virði Íslandsbanka – bankans sem verið hefur í kastljósi þjóðarinnar vegna útboðs á 45,2% hlut ríkissjóðs – er 222 milljarðar króna miðað við lokagengi dagsins í Kauphöll Íslands. Það er því ekki óvarlega áætlað að virði Kerecis í dag, tveimur árum eftir sölu er á pari við eitt stykki Íslandsbanka.

Í því ljósi verður að telja ólíklegt að Vestri hafi leitað til Kerecis með beiðni um 2,5 milljón króna framlag til að tryggja leikheimild handa Daða – og fengið neitun. Það eitt dregur úr trúverðugleika þess að fjárhagurinn hafi ráðið úrslitum í málinu.

Vangavelta 2: Hefur Vestri áhyggjur af viðbrögðum Víkings?

Óstaðfestar heimildir herma að Vestri hafi áhyggjur af mögulegum afleiðingum ef Daði Berg spilar gegn Víkingi. Þær vangaveltur hafa komið upp að Víkingur gæti brugðist við með því að kalla hann heim úr láni fyrr en áætlað var.

Ef þessi vangavelta reynist á rökum reist – sem höfundur telur líklegra en hina – má segja að Víkingur Reykjavík sé að haga sér eins og litla liðið fyrir þessa viðureign.

Hver og einn verður að draga sínar ályktanir. En eitt er víst: Umræðan um lánssamninga, leikheimildir og áhrif stærri félaga á minni verður ekki síður áhugaverð en leikurinn sjálfur á morgun.
Athugasemdir
banner