Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir sem leikur með Arnar Björnar í Noregi verður frá keppni fram eftir næsta ári eftir að hafa slitið krossband í hné.
Gunnhildur Yrsa staðfesti þetta við Fótbolta.net í kvöld en hún sleit krossbandið á æfingu með norska liðinu í júní
Gunnhildur varð að draga sig úr landsliðshópnum fyrir æfingaleik Íslands gegn Danmörku 20. júní leik og þar með varð ljóst að hún myndi missa af Evrópumóti kvennalandsliða sem fer fram í Svíþjóð í næsta mánuði.
Hún sagði við Fótbolta.net að hún yrði frá keppni út þetta ár og fyrstu mánuði næsta árs einnig.
Athugasemdir