Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var til viðtals í höfuðstöðvum KSÍ í dag. Dregið var í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins og mætir Víkingur liði KR í stórleik umferðarinnar.
Fótbolti.net ræddi við Arnar um leikinn gegn KR en einnig um leikinn í kvöld. Víkingur getur komist upp í annað sætið með sigri í kvöld og á auk þess annan leik til góða á topplið Vals. Viðtalið í heild má sjá hér að ofan en einungis svör Arnars varðandi leikinn í kvöld verða skrifuð hér upp.
Fótbolti.net ræddi við Arnar um leikinn gegn KR en einnig um leikinn í kvöld. Víkingur getur komist upp í annað sætið með sigri í kvöld og á auk þess annan leik til góða á topplið Vals. Viðtalið í heild má sjá hér að ofan en einungis svör Arnars varðandi leikinn í kvöld verða skrifuð hér upp.
„Mér líst mjög vel á leikinn í kvöld. Ég held þetta sé fyrsta leikur minn í Breiðholti í efstu deild sem leikmaður eða þjálfari. Ég hef heyrt góðar sögur af Leiknismönnum, stuðningsmönnum og ég bíð spenntur eftir að sjá hvort þær séu sannar."
Eru allir klárir í leikinn?
„Já, það eru allir klárir. Ótrúlegt. Við erum reyndar búnir að vera heppnir með meiðsli í sumar. Það verður hrikalega erfitt að velja byrjunarliðið og hópinn."
Taplausir í deild og bikar, ertu hræddur um að menn gætu verið að bíða eftir tapi?
„Nei, vonandi ekki en ég skil alveg hvert þú ert að fara með þessu. Samkvæmt kenningunni styttist alltaf í að þú tapir leik. Við höfum ekki tapað leik á 90 mínútum frá því í janúar. Að tapa er tilfinning sem við sem betur fer þekkjum ekki neitt voðalega vel. Menn ættu að verða fullir sjálfstrausts og ætti að verða hörkuleikir."
„Eftir úrslitin í gær erum við í kjörstöðu til að ná efsta sætinu (með sigri í kvöld og í leiknum sem liðið á til góða). Það er svolítið í okkar höndum og væri helvíti súrt að láta það úr greipum ganga í kvöld."
Leikur Leiknis og Víkingur hefst klukkan 19:15 í kvöld.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
Athugasemdir























