Fotbolti.net
28.06.26 - 17:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lewandowski samþykkir að ganga til liðs við Chicago Fire

Lewandowski samþykkir að ganga til liðs við Chicago Fire
Canon

Mynd: EPA

Pólski framherjinn Robert Lewandowski er á leið til Chicago Fire í MLS deildinni í Bandaríkjunum.

Hann kíkti á aðstæðurnar hjá félaginu um daginn og leyst vel á. Hann mun skrifa undir samning við félagið á næstu dögum.
Lewandowski er 37 ára gamall framherji en hann yfirgaf Barcelona í sumar eftir fjögur ár hjá félaginu.

Hann er markaskorari af guðsnáð en hann hefur skorað 662 mörk í 940 leikjum á ferlinum. Hann hefur spilað með liðum á borð við Dortmund, Bayern og Barcelona.

Hann hefur spilað 167 landsleiki fyrir hönd Póllands og skorað 89 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.