Þjálfari Suður-Kóreu segir af sér eftir vonbrigðin á HM (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Hong Myung-bo hefur sagt starfi sínu sem landsliðsþjálfari Suður-Kóreu lausu eftir vonbrigðin á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
Hann tók við landsliðinu árið 2024 og var með samning til ársins 2027 en hefur nú ákveðið að stíga til hliðar.
Suður-Kórea vann fyrsta leik sinn í A-riðli heimsmeistaramótsins, 2-1 gegn Tékkum, en náði ekki að fylgja því eftir og tapaði síðustu tveimur leikjunum.
Liðið hafnaði í 3. sæti riðilsins og batt vonir við að komast áfram sem ein af bestu þjóðunum í þriðja sæti. Sú von slokknaði hins vegar eftir lokaleikina í hinum riðlunum.
Myung-bo tók ábyrgðina á sig og sagði af sér. Hann tilkynnti ákvörðunina á blaðamannafundi í Zapopan í Mexíkó, þar sem Suður-Kórea var með bækistöðvar sínar á mótinu.
Þetta er í annað sinn sem Myung-bo tekst ekki að koma Suður-Kóreu upp úr riðlinum á HM. Hann stýrði einnig liðinu á HM 2014, þar sem það hafnaði í neðsta sæti riðilsins með aðeins eitt stig.