28.07.02 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Silva kominn til Arsenal (Staðfest)
Gilberto Silva einn leikmanna heimsmeistaraliðs Brasilíumanna gekk í dag til liðs við Arsenal frá Brasilíska liðinu Atlético Mineiro. Silva lék alla leiki Brasilíumanna á HM frá upphafi til enda og er á því nokkuð stóran hlut í Heimsmeistaratitlinum. Arsene Wenger stjóri Arsenal sagði í morgun. ,,Ég er ánægður með að Gilberto Silva hafa gengið til liðs við okkur. Hann er með meðfædda hæfileika, heimsklassaleikmaður sem sannaði sig í Japan í sumar." Silva sagði svo, ,,Ég er ánægður með að ganga til liðs við Arsenal. Þeir eru meistarar í Englandi og eru með hóp fullan af heimsklassaleikmönnum. Ég hlakka til að búa í london og spila fyrir eitt af bestu liðum í Evrópu."
