28.07.12 - 10:40
Ívan Guðjón Baldursson
Luc Castaignos kominn til Twente (Staðfest)

Castaignos (í bláum búning) að skora fyrir Feyenoord.

Mynd: Getty Images

Luc Castaignos, nítján ára sóknarmaður, er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við hollenska félagið FC Twente.
Castaignos er hollenskur og hóf feril sinn með því að skora 15 mörk í 37 leikjum fyrir Feyenoord en var svo keyptur til Inter í fyrra þar sem hann kom við sögu í sex leikjum og skoraði eitt mark.

Everton og Liverpool hafa verið á höttunum eftir Castaignos í sumar en hann ákvað að snúa til heimalandsins þar sem honum líður best og þarf enga aðlögun.
,,Ég er að fara frá Inter til Twente fyrir 6 milljónir evra,\" sagði Castaignos við FCInterNews.
,,Ég skrifaði undir fjögurra ára samning en vil halda samningskjörunum útaf fyrir mig.
,,Ég kom til Inter til að sýna hver Luc Castaignos er í raun og hvers ég er megnugur á knattspyrnuvellinum en ég fékk of lítið af tækifærum til að sanna mig.
,,Þrátt fyrir það vona ég að þetta ár verði betra fyrir Inter því félagið verðskuldar ekki að upplifa annað tímabil eins og það síðasta. Ég valdi Twente því ég vildi fara í lið þar sem ég veit að ég fæ mikinn spilatíma og get bætt mig.\"