Fotbolti.net
28.07.12 - 13:03
Hafliði Breiðfjörð

Hafþór Þrastarson lánaður frá FH í Selfoss (Staðfest)

Hafþór Þrastarson er kominn í Selfoss.

Hafþór Þrastarson er kominn í Selfoss.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðvörðurinn Hafþór Þrastarson hefur verið lánaður frá FH til Selfoss út tímabilið og hefur þegar fengið leikheimild með sínu nýja félagi.
Hann má því spila með Selfyssingum gegn Val í Pepsi-deildinni annað kvöld.

Hafþór hefur ekki átt fast sæti í liði FH í sumar og einungis leikið tvo leiki í Pepsi-deildinni.

Í fyrra var þessi 22 ára gamli leikmaður á láni hjá KA þar sem hann spilaði 19 leiki í fyrstu deildinni.

Selfyssingar hafa verið í leit að miðverði þar sem fyrirliðinn Stefán Ragnar Guðlaugsson er frá keppni vegna meiðsla þessa dagana sem og Agnar Bragi Magnússon sem verður ekkert meira með í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.