Fotbolti.net
28.07.12 - 15:00
Ívan Guðjón Baldursson

Harding og Halford komnir til Nottingham Forest (Staðfest)

Harding og Halford komnir til Nottingham Forest (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nottingham Forest ætlar að koma sér upp í Úrvalsdeildina eftir langa bið í neðri deildum og nú er félagið búið að staðfesta tvö leikmannakaup.

Varnarmaðurinn Greg Halford kemur til félagsins frá Portsmouth, en nú hefur Portsmouth aðeins fimm leikmenn á sínum snærum vegna peningaleysis.
Dan Harding kemur þá frá Southampton og er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Forest. Harding er 28 ára vinstri bakvörður og er hann fjórði leikmaðurinn sem skrifar undir samning við félagið í vikunni.

Adlene Guedioura og Danny Collins gengu til liðs við Forest fyrr í vikunni og eru þetta fyrstu fjögur kaup nýja stjóra liðsins, Sean O\'Driscoll.

,,Við erum mjög ánægðir með hvernig hlutirnir eru að ganga. Margir góðir leikmenn eru að skrifa undir samninga við félagið,\" sagði Omar Al Hasawi, forseti Nottingham Forest.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.