Fotbolti.net
28.07.17 - 11:05
Magnús Már Einarsson

Kristinn Jóns í Breiðablik (Staðfest)

Kristinn Jóns í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vinstri bakvörðurinn Kristinn Jónsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Breiðablik á nýjan leik.

Kristinn kemur til Breiðabliks frá Sogndal í Noregi en hann hefur fengið fá tækifæri þar á þessu tímabili.
„Þau frábæru tíðindi voru að berast að Kristinn Jónsson hefur gengið aftur til liðs við Breiðablik og mun leika með liðinu til loka þessa keppnistímabils í það minnsta,\" segir á Blikar.is.

Í fyrra lék Kristinn með Sarpsborg í Noregi en hann hefur einnig leikið með Brommapojkarna í Svíþjóð á ferli sínum.

Hinn 26 ára gamli Kristinn er uppalinn hjá Breiðablik. Hann hefur leikið 223 leiki með félaginu í meistaraflokki og skorað í þeim 15 mörk. Hann var lykilmaður þegar liðið varð Íslandsmeistari 2010 og bikarmeistari 2011.

Kristinn á að baki 8 A-landsleiki og alls 32 leiki með yngri landsliðum Íslands.

Davíð Kristján Ólafsson hefur verið vinstri bakvörður Breiðabliks í sumar en Kristinn gæti nú tekið stöðuna af honum. Næsti leikur Breiðabliks er gegn Fjölni á mánudaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.