Fotbolti.net
28.07.17 - 07:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Michael Hector til Hull (Staðfest)

Hector á enn eftir að leika fyrir Chelsea

Hector á enn eftir að leika fyrir Chelsea

Canon

Mynd: Chelsea

Miðvörðurinn Michael Hector hefur gengið til liðs við Hull á láni frá Englandsmeisturum Chelsea.

Hector kemur frá Jamaíka en hann lék með Frankfurt á láni í þýsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Hector gekk til liðs við Chelsea árið 2015 en hefur verið lánaður í burtu öll tímabilin sín og á hann enn eftir að spila leik fyrir Chelsea.

„Þegar ég komst að því að Hull hefði áhuga á að fá mig á láni, þá var þetta auðveld ákvörðun,\" sagði Hector.

Hector mun hitta Ola Aina hjá Hull en hann er einnig á láni frá Chelsea. Talið er að fleiri leikmenn munu fara á láni frá Chelsea til Hull þar sem Leonid Slutsky, nýr stjóri Hull og Roman Abramovich, eigandi Chelsea eru miklir vinir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.