Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, sem hafa hrósað og sýnt fimleikastjörnunni Simone Biles stuðning eftir ákvörðun sem hún tók á Ólympíuleikunum í Tókýó í gær.
Biles, sem er frægasta fimleikakona í heimi, ákvað að draga sig úr keppni í gær til að huga að andlegri heilsu sinni.
Það hafa einhverjar gagnrýnisraddir vaknað í kjölfarið á ákvörðun hennar, en æ fleiri hafa sýnt henni stuðning og hrósað Biles fyrir mikið hugrekki.
„Simone Biles sýndi óneitanlegan styrk. Við leggjum alltaf áherslu á líkamlega heilsu en andleg heilsa er alveg jafn mikilvæg. Þegar þú hugar að bæði tveggja þá muntu blómstra í lífinu," skrifar Pogba á Twitter.
Þessi ákvörðun Biles hefur virkjað umræðuna um andlega heilsu íþróttafólks enn frekar.
A moment of undeniable strength from @simone_biles. We always focus on the physical aspect of health but the mental aspect is just as important. When you take care of both, you will flourish in life! ❤️🤍💙#SimoneBiles GOAT 🐐
— Paul Pogba (@paulpogba) July 28, 2021
Athugasemdir