fim 28. júlí 2022 17:04
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Blika í Svartfjallalandi: Kristinn inn fyrir Jason
Damir Muminovic, varnarmaður Breiðabliks.
Damir Muminovic, varnarmaður Breiðabliks.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik leikur síðari leik sinn gegn Buducnost Podgorica frá Svartfjallalandi í forkepni Sambandsdeildarinnar klukkan 18:30. Fyrri leikur liðanna á Kópavogsvelli var ansi skrautlegur en tveimur fleiri tókst Blikum að skora tvö og fóru með 2-0 sigur af hólmi.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Óskar Hrafn Þorvaldsson gerir eina breytingu frá byrjunarliðinu í fyrri leiknum. Kristinn Steindórsson, sem kom inn af bekknum og skoraði, kemur inn í stað Jasons Daða Svanþórssonar sem sest á bekkinn.

Damir Muminovic er á sínum stað í vörninni en eftir leikinn í Kópavogi hópuðust reiðir leikmenn svartfellska liðsins að honum.

Byrjunarlið Breiðabliks:
1. Anton Ari Einarsson (m)
3. Oliver Sigurjónsson
4. Damir Muminovic
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson
10. Kristinn Steindórsson
11. Gísli Eyjólfsson
16. Dagur Dan Þórhallsson
21. Viktor Örn Margeirsson
22. Ísak Snær Þorvaldsson
25. Davíð Ingvarsson
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner