Fotbolti.net
28.07.26 - 12:07
Elvar Geir Magnússon

UEFA segir VAR ofnotað - „Á bara að nota í augljósum mistökum“

Dómari í VAR skjánum.

Dómari í VAR skjánum.

Canon

Mynd: EPA

VAR myndbandsdómgæslukerfið er ofnotað að sögn UEFA og þörf á að bregðast við. Of margar skoðanir séu að taka langan tíma og það sýni að VAR hafi farið út fyrir upphaflegt verksvið sitt.

Þetta var niðurstaðan á stórri dómararáðstefnu sem haldin var á dögunum. VAR var upphaflega tekið upp til að leiðrétta augljós dómaramistök og yfirmenn dómaramála í Evrópu eru sammála um að þörf sé á að stíga til baka og horfa til upphaflegra markmiða VAR.
„Ítrekað er að samkvæmt verklagsreglum megi VAR aðeins grípa inn í þegar um er að ræða „skýr og augljós“ mistök, þegar ákvörðun dómara er bersýnilega röng eða þegar dómari hefur látið augljóst atvik fram hjá sér fara," segir UEFA í yfirlýsingu.

„Tilgangur VAR er ekki sá að endurdæma leikinn; kerfið er mikilvægur stuðningur við dómarana, sem verða áfram að vera í forgrunni við allar ákvarðanatökur. Langdregnar og ítarlegar skoðanir á smáatriðum eru oft merki þess að ákvörðunin á vellinum hafi ekki verið augljóslega röng, og því ætti að takmarka slíkt."
UEFA segir VAR ofnotað - „Á bara að nota í augljósum mistökum“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.