Fotbolti.net
28.07.26 - 12:30
Elvar Geir Magnússon

Rodri verði ekki lengi frá

Rodri er einn besti leikmaður heims en meiðsli hafa verið að plaga hann.

Rodri er einn besti leikmaður heims en meiðsli hafa verið að plaga hann.

Canon

Mynd: EPA

Manchester City hefur gefið það út að Rodri verði frá í stuttan tíma eftir að hafa farið í aðgerð vegna bakmeiðsla. Ekki er hinsvegar gefinn út neinn tímarammi.

City mætir Arsenal í leiknum um Samfélagsskjöldinn þann 16. ágúst og mætir Bournemouth í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar þann 23. ágúst.

City segir að Rodri hafi fundið fyrir óþægindum í nokkurn tíma en nú gengist undir aðgerð til að stöðva þau.

„Hann þarf að taka sér frí, hann þarf að hvílast og ná sér og svo kemur hann aftur til okkar," sagði Enzo Maresca, nýr stjóri Manchester City, síðasta föstudag.
„Hver einasti stjóri vill hafa Rodri“
TENGT EFNI

„Hver einasti stjóri vill hafa Rodri“

Rodri vann HM með spænska landsliðinu og var valinn besti maður mótsins. Hann á ár eftir af samningi sínum við City og hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid.

Staða Rodri líkamlega hefur skapað áhyggjur en hann hefur verið í meiðslabrasi síðustu tvö tímabil og er að gangast undir aðgerð vegna bakmeiðsla. Hann minnti þó heldur betur á það hvað hann getur á nýafstöðnu heimsmeistaramóti.
Rodri verði ekki lengi frá
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.