28.08.12 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Razak Boukari til Wolves (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Vængmaðurinn Razak Boukari er nýjasti liðsmaður Wolves í ensku Championship-deildinni.
Boukari kemur frá Rennes og hefur skrifað undir fjögurra ára samning.

Þessi 25 ára landsliðsmaður frá Togo er sjötti leikmaðurinn sem Úlfarnir kaupa í sumar en hann skoraði 7 mörk í 38 leikjum fyrir Rennes en áður var hann í herbúðum Lens.
Wolves seldi Steven Fletcher til Sunderland og Matt Jarvis til West Ham.
„Ég er meðvitaður um að þetta er ekki úrvalsdeildin en ég er ákveðinn í að standa mig. Ég get spilað á miðjunni, á hægri eða vinstri kanti og get leyst stöðu framherja líka,\" segir Boukari.