28.08.12 - 13:43
Daníel Freyr Jónsson
M\'Baye Niang til AC Milan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Franska undrabarnið M\'Baye Niang er genginn í raðir stórliðsins AC Milan frá Caen í heimalandinu og skrifað hann undir þriggja ára samning.
Niang, sem er 17 ára gamall framherji, hefur verið eftirsóttur af liðum um alla Evrópu undanfarin misseri og var hann meðal annars á reynslu hjá Arsenal og Everton fyrr á árinu.
Niang lék reglulega með Caen í frönsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og hefur þegar fest sig í sessi með U-21 árs liði Frakka.
Hann mun núna fara til AC Milan og verður honum strax hent í djúpu laugina þar sem hann mun verða hluti af aðalliði félagsins.
,,Við það að ganga í raðir Milan hefur stór draumur minn ræst,\" sagði Niang við ítalska fjölmiðla í gær.
,,Núna er það undir mér komið að sanna að ég sé nógu góður fyrir þetta frábæra félag.\"
AC Milan veitir ekki af liðsstyrk fram á við fyrir komandi vetur eftir að hafa selt Zlatan Ibrahimovic í sumar og vegna meiðslavandræða Alexandre Pato.