28.08.12 - 16:55
Ívan Guðjón Baldursson
Bojan til AC Milan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Bojan Krkic er orðinn leikmaður AC Milan. Hann kemur á lánssamningi frá AS Roma út tímabilið.
Bojan hefur staðfest við fjölmiðla að allt sé frágengið og segist spenntur en Milan mun svo fá forkaupsrétt á honum.
Milan hefur verið á höttunum eftir sóknarmönnum í sumar eftir að hafa selt Zlatan Ibrahimovic til Paris Saint-Germain í Frakklandi.

M\'Baye Niang, sautján ára sóknarmaður, er kominn til félagsins frá Caen og félagið hefur einnig áhuga á Nicklas Bendtner, sóknarmanni Arsenal.
,,Við erum að reyna að bæta liðið og huga til framtíðarinnar,\" sagði Adriano Galliani hjá AC Milan við Gazzetta.it.
,,Við höfum ákveðið að við ætlum að reyna að ljúka öllum viðskiptum sumarsins í dag. Allt lítur vel út eins og er.\"