28.08.18 - 22:40
Brynjar Ingi Erluson
Nenad Zivanovic hættur með Hött (Staðfest)

Nenad Zivanovic er hættur með Hött

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Knattspyrnudeild Hattar hefur komist að samkomulagi við Nenad Zivanovic um að hann hætti störfum sem þjálfari karlaliðsins. Þetta kom fram í yfirlýsingu frá félaginu í kvöld.
Nenad sem er 42 ára gamall tók við Hetti fyrir síðasta tímabil en liðið hafnaði í tíunda sæti í 2. deildinni.
Nú situr liðið í ellefta sæti deildarinnar með 14 stig þegar fjórar umferðir eru eftir.
Nenad spilaði lengi vel á Íslandi en hann spilaði fyrir Breiðablik, Þór, KF og Hött. Hann á 137 leiki og 35 mörk í deild- og bikar hér á landi.
Hans besta tímabil kom með Blikum í gömlu Landsbanka-deildinni tímabilið 2008 en hann gerði þá 9 mörk í 21 leik.
Yfirlýsing frá Hetti:
„Nenad Zivanovic sem þjálfað hefur Hött Egilsstöðum í 2. deild karla síðustu tvö sumur hefur ákveðið að stíga til hliðar þegar 4 leikir eru eftir í deildinni. Þetta gerir hann með hag liðsins í huga þar sem liðið hefur ekki staðið undir væntingum í sumar. Guðmundur Bj. Hafþórsson, formaður stjórnar Rekstrarfélags Hattar hefur samþykkt hans ósk fyrir hönd stjórnar og er hún byrjuð að horfa í kringum sig eftir arftaka til að halda liðinu uppí 2. deild.\"