28.08.18 - 20:16
Brynjar Ingi Erluson
Paco Alcacer til Dortmund (Staðfest) - Kynntur í gegnum Tinder

Paco Alcacer er kominn til Borussia Dortmund

Mynd: Twitter

Paco Alcacer er kominn til Borussia Dortmund

Mynd: Twitter
Þýska félagið Borussia Dortmund hefur staðfest komu spænska framherjans Paco Alcacer frá Barcelona en hann gerir lánssamning út tímabilið.
Alcacer er 24 ára gamall framherji sem kom til Barcelona frá Valencia fyrir 30 milljónir evra árið 2016 en hann hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Börsungum.
Hann er kominn á lán til Dortmund út tímabilið en félagið á möguleika á því að kaupa hann á 25 milljónir evra á meðan lánssamningurinn er í gildi.
Dortmund kynnti félagaskiptin á sérstakan hátt en það kynnti hann í gegnum stefnumótaforritið Tinder.
Hægt er að sjá kynninguna hér fyrir neðan.

😃 Heute in Dortmund... pic.twitter.com/tUgf1QoUfw
— Borussia Dortmund (@BVB) August 28, 2018