Fotbolti.net
28.08.18 - 11:35
Magnús Már Einarsson

Smalinn framlengir við Stjörnuna (Staðfest)

Smalinn framlengir við Stjörnuna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Baldur Sigurðsson, fyrirliði Stjörnunnar, hefur framlengt samning sinn við félagið út tímabilið 2020.

Smalinn er á sínu þriðja tímabili með Stjörnunni en hann kom til félagsins frá SönderjyskE í Danmörku fyrir sumarið 2016. Baldur hefur verið í lykilhlutverki hjá Stjörnunni undanfarin ár.

Hinn 33 ára gamli Baldur skoraði sitt fimmta mark í Pepsi-deildinni í 2-1 sigri Stjörnunnar gegn Breiðabliki á laugardaginn.

Baldur er uppalinn hjá Völsungi en hnan hefur einnig leikið með Keflavík og KR á Íslandi sem og Bryne í Noregi.

Stjarnan mætir Val í uppgjöri toppliðanna í Pepsi-deildinni í Garðabæ annað kvöld.

Smalinn framlengir!
Stjarnan hefur samið við fyrirliða félagsins, Baldur Sigurðsson til næstu tveggja ára eða út keppnistímabilið 2020.

Ekki er verra að tveir ungir og efnilegir smalar fylgja honum hjá Stjörnunni að minnsta kosti næstu árin! #InnMedBoltann pic.twitter.com/Glvjvu1T0K

— Stjarnan FC (@FCStjarnan) August 28, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.