Fotbolti.net
28.09.12 - 22:00
Brynjar Ingi Erluson

Jermaine Beckford lánaður til Huddersfield (Staðfest)

Jermaine Beckford lánaður til Huddersfield (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Jermaine Beckford, leikmaður Leicester City á Englandi, hefur verið lánaður til enska fyrstu deildar liðsins Huddersfield Town.
Beckford, sem er 28 ára gamall, samdi í kvöld við Huddersfield Town um að vera á láni út tímabilið, en hann gæti náð sínum fyrsta leik gegn Watford á morgun.

Leikmaðurinn gekk til liðs við Leicester City frá Everton á síðasta ári, en hann hefur leikið 49 leiki og skorað 15 mörk fyrir Leicester.

,,Jermaine er frábær knattspyrnumaður og hann gefur okkur aukna breidd. Þeir leikmenn sem við höfum eru allir með ólíka hæfileika en Jermaine er fæddur markaskorari og talar ferillinn hans sínu máli,\" sagði Simon Grayson, stjóri Huddersfield.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.