28.09.18 - 11:30
Magnús Már Einarsson
Bilic tekur við liði Í Sádi-Arabíu (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Slaven Bilic, fyrrum stjóri West Ham, hefur verið ráðinn þjálfari Al-Ittihad í Sádi-Arabíu.
Bilic var rekinn frá West Ham í nóvember í fyrra og síðan þá hefur hann verið án starfs.
Bilic var rekinn frá West Ham í nóvember í fyrra og síðan þá hefur hann verið án starfs.
Bilic tekur við af hinum argentínska Ramon Diaz sem var rekinn eftir að liðið náði ekki sigri í fyrstu fjórum leikjum tímabilsins.
Al-Ittihad er gamalt stórveldi í Sádi-Arabíu en það hefur átta sinnum orðið meistari þar í landi.
Al-Ittihad er gamalt stórveldi í Sádi-Arabíu en það hefur átta sinnum orðið meistari þar í landi.
