Fotbolti.net
28.09.18 - 20:15
Brynjar Ingi Erluson

Páll Viðar áfram með Magna (Staðfest)

Páll Viðar Gíslason verður áfram með Magna

Páll Viðar Gíslason verður áfram með Magna

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Páll Viðar Gíslason verður áfram með Magna á næsta tímabili en þetta kom fram í tilkynningu frá félaginu í kvöld. Hann bjargaði liðinu frá falli í lokaumferð Inkasso-deildarinnar.
Páll Viðar tók við Magna fyrir síðasta tímabil og kom liðinu upp úr 2. deildinni og í Inkasso.

Hann framlengdi svo samning sinn í kjölfarið en eftir erfiða baráttu í sumar tókst liðinu að halda sér uppi eftir 3-2 sigur á ÍR í lokaumferðinni.

Páll verður áfram með magna en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Samningur hans rennur út eftir næsta tímabil en nú hefst undirbúningur á að styrkja leikmannahópinn fyrir næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.