Daniel James, leikmaður Manchester United, fer til Leeds United á láni, takist United að klára kaupin á Jadon Sancho.
James byrjaði inn á í tapi United gegn Crystal Palace í fyrsta leik liðsins en hann var ekki í hóp í sigurleiknum gegn Brighton í fyrradag.
Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, hefur áhuga á að fá James en samkvæmt enskum miðlum þá hefur Ole Gunnar Solskjær ákveðið það að James fái að fara en einungis ef United fær leikmann inn í hans stöðu.
Samkvæmt Sportsmail, þá er United að undirbúa lokatilboð í Sancho en liðið hefur verið orðað við leikmanninn í allt sumar. Dortmund vill fá 120 milljónir punda fyrir enska landsliðsmanninn.
Dortmund hefur gefið það út nokkrum sinnum að Sancho verði áfram hjá liðinu en United hefur enn trú á því að liðinu takist að kaupa hann fyrir lok gluggans.
Athugasemdir