Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 28. september 2021 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Tindastóll auglýsir eftir yngri flokka þjálfara
Mynd: Aðsend
Knattspyrnudeild Tindastóls á Sauðárkróki auglýsir eftir þjálfara fyrir yngri flokka félagsins.

Hjá Tindastóli eru rúmlega 200 iðkendur frá 2. fl. og niður í 8. fl.
Það er metnaður hjá deildinni að gera vel í yngri flokkunum og nú starfar góður hópur þjálfara hjá félaginu sem vill halda áfram að bæta starfið hjá öllum flokkum næstu árin.

Við erum að leita að öflugum þjálfara til að koma inn í þennan hóp og yngri flokka starf Tindastóls. Þjálfaramenntun hjá KSÍ er æskileg og/eða reynsla við þjálfun.

Hægt er að semja um starfshlutfall.

Umsóknir og nánari upplýsingar eru veittar í netfanginu: [email protected]



Athugasemdir
banner