Fotbolti.net
28.10.12 - 21:29
Magnús Már Einarsson

Haukur Baldvinsson í Fram (Staðfest)

Haukur Baldvinsson í Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Framarar hafa fengið kantmanninn Hauk Baldvinsson til liðs við sig frá Breiðabliki.
Haukur var samningsbundinn Blikum til ársins 2014 en hann fékk á dögunum leyfi til að ræða við önnur félög.

Haukur er 22 ára og er uppalinn hjá Breiðabliki en hefur ekki náð að vinna sér inn fast sæti í byrjunarliðinu.

Haukur lék fjórtán leiki í Pepsi-deildinni í sumar en alls hefur hann leikið 64 mótsleiki fyrir Blika í deild og bikar og skorað í þeim níu mörk.

Framarar eru að vinna í að styrkja leikmannahóp sinn þessa dagana en þeir fengu Viktor Bjarka Arnarson einnig í sínar raðir fyrir helgi.

Heimild: Heimasíða Fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.