Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 28. október 2020 12:29
Elvar Geir Magnússon
Benzema sagði liðsfélaga að senda ekki á Vinicius Jr
Mynd: Skjáskot
Það náðist á myndavél þegar Karim Benzema, leikmaður Real Madrid, sagði liðsfélaga sínum Ferland Mendy um að gefa ekki á Vinicius Jr.

„Ekki senda á hann. Hann er að spila gegn okkur," segir Benzema.

Upptakan er frá leikmannagöngunum í hálfleik í leik Real gegn Borussia Mönchengladbach í Meistaradeildinni í gær. Leikurinn endaði 2-2.

Vinicius Jr stóð rétt hjá Benzema og Mendy á meðan þeir spjölluðu.

Mendy gaf aðeins þrívegis á Vinicius Jr eftir hlé en Real Madrid lenti tveimur mörkum undir í leiknum en náði jafntefli.

Real Madrid tapaði fyrir Shaktar Donetsk í fyrstu umferð riðilsins og fer því afar illa af stað í Meistaradeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner