lau 28. nóvember 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Reynir S. framlengir við fyrirliðann og lykilmenn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Reynir Sandgerði er að framlengja við lykilmenn sína fyrir komandi átök í 2. deildinni eftir að liðið fór þægilega upp úr 3. deild í haust.

Strahinja Pajic, fyrirliði Reynis, er búinn að framlengja en hann er 29 ára gamall og meðal bestu leikmanna Reynis.

Ante Marcic, 25 ára Króati sem leikur með NK Omis í 3. deild í heimalandinu, er einnig búinn að skrifa undir og kemur aftur í lið Reynis eftir áramót. Hann skorað 4 mörk í 20 leikjum með Reyni í sumar.

Þá eru Keflvíkingarnir Magnús Magnússon, 21, og Óðinn Jóhannsson, 23, einnig búnir að skrifa undir. Þeir hafa verið lykilmenn hjá Reyni undanfarin ár og munu spila í bandaríska háskólaboltanum í vetur. Miðvörðurinn Benedikt Jónsson, sem er einnig ungur Keflvíkingur, gerði tveggja ára samning við Reyni.

Sindri Lars Ómarsson, 22 ára bakvörður, skrifaði þá undir ásamt miðjumönnunum Ása Þórhallssyni, 25 ára, og Ársæli Kristni Björnssyni, 21 árs.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner