Fotbolti.net
28.12.17 - 12:07
Magnús Már Einarsson

Carvalhal tekinn við Swansea (Staðfest)

Carlos Carvalhal er fimmti stjóri Swansea á tveimur árum.

Carlos Carvalhal er fimmti stjóri Swansea á tveimur árum.

Canon

Mynd: GettyImages

Carlos Carvalhal hefur verið ráðinn stjóri Swansea en félagið tilkynnti þetta nú rétt í þessu. Carvalhal var rekinn frá Sheffield Wednesday á aðfangadag en hann var ekki lengi atvinnulaus.

Carvalhal tekur við Swansea af Paul Clement sem var rekinn í síðustu viku.

Hinn 52 ára gamli Carvalhal er frá Portúgal en hann hefur stýrt Sheffield Wednesday í tvö og hálft ár. Liðið fór í umspil í Championship deildinni undir hans stjórn á síðasta tímabili.

Swansea er í slæmum málum á botni ensku úrvalsdeildarinnar en liðið steinlá 5-0 gegn Liverpool í fyrradag.

Næsti leikur Swansea er gegn Watford á útivelli á laugardag.

Welcome to @SwansOfficial, Carlos Carvalhal! 👋#WelcomeCarlos pic.twitter.com/DT3BHm3bzx

— Swansea City AFC (@SwansOfficial) December 28, 2017

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.