Fotbolti.net
28.12.18 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Albert Hafsteins áfram hjá ÍA (Staðfest)

Albert Hafsteins áfram hjá ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Albert Hafsteinsson skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við ÍA.
Albert var samningslaus en hann spilaði meðal annars leik með FH í Bose-mótinu á dögunum.

Nú er hins vegar ljóst að hann tekur slaginn áfram með ÍA í Pepsi-deildinni.

„Það var ekki erfið ákvörðun að skrifa undir hjá heimaliðinu. Árið í fyrra var mjög skemmtilegt og ég hlakka til að vinna áfram með Jóa og Sigga," sagði Albert við Fótbolta.net í dag.

Hinn 22 ára gamli Albert skoraði tvö mörk í sautján leikjum þegar ÍA vann Inkasso-deildina síðastliðið sumar.

Samtals hefur Albert skorað sex mörk í 86 deildar og bikarleikjum með uppeldisfélagi sínu ÍA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.