28.12.18 - 12:33
Magnús Már Einarsson
Björn Daníel í FH (Staðfest)

Björn Daníel og Jón Rúnar Halldórsson eftir undirskrift í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Miðjumaðurinn öflugi Björn Daníel Sverrisson hefur gengið til liðs við FH á nýjan leik en þetta var tilkynnt á fréttamannafundi nú rétt í þessu. Björn Daníel skrifaði undir fjögurra ára samning við FH.
„Við erum ofboðslega ánægðir með að fá þennan leikmann heim og alltaf þegar við fáum leikmenn heim," sagði Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, „Björn á eftir að gera góða hluti fyrir okkur og við ætlumst líka til mikils af honum."
Björn Daníel var síðast á mála hjá AGF í Danmörku en hann losnaði undan samningi þar á dögunum.
Hinn 28 ára gamli Björn Daníel fór frá FH eftir sumarið 2013 en hann gekk þá til liðs við Viking í Noregi. Árið 2016 færði hann sig síðan um set til AGF.
Áður en Björn Daníel fór út í atvinnumennsku skoraði hann 32 mörk í 108 leikjum með FH í efstu deild og varð þrívegis Íslandsmeistari.
Björn Daníel er þriðji leikmaðurinn sem FH fær í vetur en áður höfðu varnarmennirnir Guðmann Þórisson og Brynjar Ásgeir Guðmundsson komið til félagsins. Líkt og Björn Daníel þá hafa Guðmann og Brynjar Ásgeir leikið áður með FH.
Viðtal við Björn Daníel um félagaskiptin birtist á Fótbolta.net innan tíðar.

Við kynnum með stolti nýjasta leikmann FH - @bjornsverris. Velkominn heim! #ViðErumFH #Fotboltinet pic.twitter.com/X86dnWG6Td
— FHingar.net (@fhingar) December 28, 2018