Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 29. mars 2021 19:58
Victor Pálsson
Sara Björk dregur sig úr hópnum vegna meiðsla - Karitas kemur inn
Karítas Tómasdóttir.
Karítas Tómasdóttir.
Mynd: Breiðablik
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur gert eina breytingu á landsliðshópnum fyrir leik við Ítalíu í apríl.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá KSÍ í kvöld en Sara Björk Gunnarsdóttir hefur þurft að draga sig úr hópnum.

Sara var ekki með liði Lyon gegn Dijon um helgina í Frakklandi en var fyrir það ónotaður varamaður í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar gegn PSG.

Karitas Tómasdóttir, leikmaður Breiðabliks, mun taka pláss Söru í hópnum.

Karitas er fædd árið 1995 en hún hefur enn ekki leikið landsleik. Karitas gekk nýlega í raðir Breiðabliks frá Selfoss.

Ísland mun spila við Ítalíu þann 13. apríl en mun spila annan æfingaleik fyrir það en óvíst er hver mótherjinn verður.

Hópurinn

Sandra Sigurðardóttir | Valur | 34 leikir

Cecilía Rán Rúnarsdóttir | Örebro | 1 leikur

Telma Ívarsdóttir | Breiðablik

Hafrún Rakel Halldórsdóttir | Breiðablik

Elísa Viðarsdóttir | Valur | 38 leikir

Anna Björk Kristjánsdóttir | Le Havre | 43 leikir

Glódís Perla Viggósdóttir | Rosengard | 89 leikir, 6 mörk

Guðrún Arnardóttir | Djurgarden | 8 leikir

Guðný Árnadóttir | Napoli | 8 leikir

Hallbera Guðný Gísladóttir | AIK | 117 leikir, 3 mörk

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir | Breiðablik | 2 leikir

Karitas Tómasdóttir | Breiðablik

Andrea Rán Hauksdóttir | Le Havre | 10 leikir, 2 mörk

Dagný Brynjarsdóttir | West Ham | 90 leikir, 29 mörk

Berglind Rós Ágústsdóttir | Örebro | 1 leikur

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir | Orlando Pride | 76 leikir, 10 mörk

Alexandra Jóhannsdóttir | Eintracht Frankfurt | 10 leikir, 2 mörk

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir | Bayern Munich | 4 leikir, 1 mark

Berglind Björg Þorvaldsdóttir | Le Havre | 48 leikir, 6 mörk

Elín Metta Jensen | Valur | 54 leikir, 16 mörk

Agla María Albertsdóttir | Breiðablik | 33 leikir, 2 mörk

Sveindís Jane Jónsdóttir | Kristianstad | 5 leikir, 2 mörk

Hlín Eiríksdóttir | Pitea IF | 18 leikir, 3 mörk
Athugasemdir
banner
banner