Fotbolti.net
29.03.26 - 20:43
Elvar Geir Magnússon

Arnar um Haítí leikinn: Gerum klárlega breytingar

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari Íslands.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari Íslands.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Eftir 2-2 jafnteflið gegn Kanada um helgina hefst undirbúningur íslenska landsliðsins fyrir seinni vináttulandsleik gluggans, leikinn gegn Haítí sem verður 16:30 að íslenskum tíma á þriðjudag.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari segir ljóst að það verði einhverjar tilfærslur í liðinu fyrir þann leik.

„Ég geri nú ráð fyrir því að við leyfum einhverjum að fá mínútur. Sumir þurfa kannski að hvíla í næsta leik út af aðstæðum sem ég talaði um í aðdraganda leiksins varðandi meiðsli og mikils leikjaálags. Við munum klárlega gera einhverjar breytingar," segir Arnar.

Vantar hreinræktaðar níur
Orri Steinn Óskarsson skoraði bæði mörk Íslands gegn Kanada en hann hefur misst talsvert úr á þessu tímabili vegna meiðsla.

„Okkur vantar kannski hreinræktaðar 'níur' í þessum glugga af ástæðum sem eru vel kunnar. Menn eru að spila með U21 landsliðinu og sumir eru meiddir," segir Arnar.

Andri Lucas Guðjohnsen er á meiðslalistanum og þá er bróðir hans Daníel Tristan í U21 hópnum og þeir því meðal leikmanna sem ekki eru í A-landsliðshópnum í þessum glugga.
Leikur Íslands gegn Haítí fer fram án áhorfenda
TENGT EFNI

Leikur Íslands gegn Haítí fer fram án áhorfenda

Tómar stúkur
Það var góð stemning og um 30 þúsund manns á leiknum gegn Kanada í gær en umgjörðin verður allt öðruvísi gegn Haítí þó leikið verði á sama velli í Toronto.

Leikurinn verður klukkan 12:30 að staðartíma á virkum degi og var miðasalan var það dræm að ekki var talið að það stæði undir kostnaði að selja inn á leikinn. Því var ákveðið að sá leikur verður áhorfendalaus.

Orri Steinn segir verkefnið spennandi þó það verði allt öðruvísi andrúmsloft.

„Skemmtilegur leikur, ekki jafn mikið af fólki en við þurfum að taka vel á þeim og vera klárir. Það var meiri stemning í þessum leik (gegn Kanada) en þá er þetta líka komið yfir til okkar að skapa stemninguna innávið. Við þurfum að taka því mjög alvarlega, Haítí er með mjög gott lið og það verður spennandi verkefni," segir Orri Steinn.

Söguleikur leikur gegn Haítí
Haítí lék vináttulandsleik hér í Toronto í gær. Liðið tapaði 1-0 gegn Túnis en Sebastian Tounekti, leikmaður Celtic, skoraði sigurmark Túnisa.

Leikur Íslands og Haítí á þriðjudag verður sögulegur fyrir þær sakir að þjóðirnar hafa aldrei áður og raunar hefur ekkert íslenskt fótboltalandslið áður mætt Haítí.

Haítí er eins og Kanada að búa sig undir þátttöku á HM í sumar en liðið er í 82. sæti heimslista FIFA, átta sætum neðar en Ísland. Enginn landsliðsmaður Haítí býr á Haítí en þetta er í annað sinn sem þjóðin kemst á HM, hitt skiptið var 1974.
Landslið Haítí er á leið á HM.

Landslið Haítí er á leið á HM.

Canon

Mynd: EPA

Það verða tómar stúkur í Toronto á þriðjudaginn.

Það verða tómar stúkur í Toronto á þriðjudaginn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.