Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
banner
   sun 29. mars 2026 19:18
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Heimild: FCK 
Neestrup hættur hjá FCK (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FC Kaupmannahöfn og Jacob Neestrup hafa komist að samkomulagi um að hann hætti sem þjálfari liðsins. Stefan Madsen aðstoðarþjálfari félagsins hættir einnig.

Liðið er ríkjandi danskur meistari en tímabilið hefur verið gríðarleg vonbrigði. Liðið hefur tapað fyrstu tveimur leikjunum í neðri hlutanum og er aðeins sex stigum frá fallsæti.

„Við höfum átt góðar og einlægar viðræður um stöðuna og erum alveg sammála um niðurstöðuna: Við erum komin á leiðarenda í góðu samstarfi og FC Kaupmannahöfn verður að fá nýjan þjálfara,“ segir Henrik Mogelmose, stjórnarformaður PARKEN Sport & Entertainment.

Hinn 17 ára gamli Viktor Bjarki Daðason hefur fengið tækifærið á tímabilinu og slegið í gegn. Rúnar Alex Rúnarsson var hins vegar lengi úti í kuldanum en hann hefur fengið tækifæri í síðustu leikjum.
Slapp
Athugasemdir
banner