Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
   sun 29. mars 2026 21:59
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu mörkin: Birkir Már lagði upp í sigri Aftureldingar
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
ÍR 2 - 3 Afturelding
0-1 Joacim Emil Godhei Holtan ('52 )
0-2 Joacim Emil Godhei Holtan ('57 )
0-3 Óðinn Bjarkason ('74 )
1-3 Stefán Þór Pálsson ('76 )
2-3 Guðjón Máni Magnússon ('83 )
Lestu um leikinn

Afturelding er komið í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir sigur í hörkuleik gegn ÍR í kvöld.

Afturelding nældi í norska framherjann Joacim Holtan fyrr í þessum mánuði en hann spilaði síðast hjá Kongsvinger í B-deildinni í Noregi. Hann átti frábæra frumraun í keppnisleik í kvöld.

Staðan var markalaus í hálfleik en Afturelding náði forystunni snemma í seinni hálfleik. Reynsluboltinn Birkir Már Sævarsson, sem skrifaði undir samning við Aftureldingu á dögunum, átti sendingu á Holtan sem skoraði með góðu skoti.

Holtan bætti öðru marki sínu og öðru marki Aftureldingar við stuttu síðar eftir sendingu frá Óðni Bjarkasyni.

Óðinn virtist síðan vera gera svo gott sem út um leikinn þegar hann skoraði með góðu skoti úr D-boganum.

ÍR náði að minnka muninn strax í kjölfarið þegar Stefán Þór Pálsson skoraði. Þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma var komin mikil spenna í leikinn þar sem Guðjón Máni Magnússon skoraði annað mark ÍR með skoti sem fór af varnarmanni og í netið.

Afturelding mætir Ými í 32-liða úrslitum um næstu helgi.

Hér eru svo mörkin.

Slapp
Athugasemdir
banner