Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
   sun 29. mars 2026 14:41
Brynjar Ingi Erluson
Tudor rekinn frá Tottenham (Staðfest)
Mynd: EPA
Króatíski stjórinn Igor Tudor hefur verið rekinn frá Tottenham Hotspur aðeins rúmum mánuði eftir að hafa tekið við liðinu en þetta kemur fram í tilkynningu Tottenham í dag.

Tudor tók við Tottenham um miðjan síðasta mánuð eftir að Thomas Frank var látinn fara.

Á þessum mánuði hefur Tudor aðeins tekist að vinna einn leik af þeim sjö leikjum sem hann stýrði en sá sigur kom gegn Atlético Madríd í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, einvígi sem Atlético vann samanlagt 7-5.

Tottenham tapaði fjórum deildarleikjum sínum undir Tudor, en eina stigið kom gegn Englandsmeisturum Liverpool.

„Við getum staðfest að við höfum náð samkomulagi við Igor Tudor um að hann láti af störfum með tafarlausum hætti. Tomislav Rogic, markvarðarþjálfari liðsins, og styrktarþjálfarinn Riccardo Ragnacci hafa einnig látið af störfum.

„Við þökkum Igor, Tomislav og Riccardo fyrir framlag þeirra og þrotlausa vinnu síðustu sex vikur. Við vottum einnig samúð vegna missis Tudor og sendum honum og fjölskyldu hans stuðning okkar á þessum erfiðu tímum,“
segir í yfirlýsingu Tottenham.

Tottenham mun gefa frekari upplýsingar um nýjan stjóra á næstu dögum, en Sean Dyche og Roberto De Zerbi eru meðal þeirra sem hafa verið orðaðir við starfið.

Tottenham er í 17. sæti deildarinnar, aðeins stigi fyrir ofan fallsæti þegar sjö umferðir eru eftir.


Slapp
Athugasemdir
banner
banner