„Ég er svekktur. Þetta er gríðarlega sterkt Stjörnulið sem hefur verið sprækt í sumar og við náum að pressa þá svolítið vel og gerðum leik úr þessu. Ég get ekki kvartað yfir framlagi eða baráttu í dag. Ég var hrikalega ánægður og stoltur af liðinu hér í dag. Það vantar bara að brjóta þetta aðeins, skora mörk og vinna leik," sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, í Bestu deild karla eftir naumt tap, 1-0 gegn Stjörnunni.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 0 ÍBV
Í lok leiks kom upp atvik þar sem Eyjamenn vildu fá vítaspyrnu.
„Í mínum augum var þetta pjúra víti. Andri potar í boltann og varnarmaðurinn stígur fyrir hann. Andri var á undan í boltann og þá er það bara víti."
Guðjón Pétur Lýðsson, leikmaður ÍBV, var utan hóps í dag í annað sinn í röð eftir uppákomu í leik gegn ÍA þar sem Hermann og Guðjón rifust á hliðarlínunni.
„Guðjón er í straffi. Hann er bara í agabanni næstu vikuna. Fyrir næsta leik þarf bara að ræða framhaldið en eins og staðan er núna er hann í agabanni."
ÍBV er aðeins með þrjú stig eftir sjö leiki. Framundan er landsleikjahlé.
„Við hefðum viljað enda þessu fyrstu törn á sigri vegna þess að það vantar lítið upp á og við höfum verið inni í öllum leikjum hingað til. Ég hefði áhyggjur er við værum í tómu basli en það er ekki þannig. Það hefur aðeins vantað upp á ákvörðunartökur en í heildinni hefðum við getað tekið miklu fleiri stig."
Allt viðtalið er hér að ofan.
Athugasemdir























