Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
   fim 29. maí 2025 18:25
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deildin: Botnliðið sigraði Íslandsmeistarana í Kópavogi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveimur leikjum var að ljúka í Bestu deild karla rétt í þessu þar sem afar áhugaverð úrslit litu dagsins ljós.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  4 ÍA

Breiðablik 1 - 4 ÍA
0-1 Erik Tobias Sandberg ('28)
0-2 Ómar Björn Stefánsson ('34)
0-3 Viktor Jónsson ('39)
1-3 Tobias Thomsen ('41 , víti)
1-4 Gísli Laxdal Unnarsson ('92)
Rautt spjald: Arnór Gauti Jónsson, Breiðablik ('67)

Óvæntustu úrslitin voru í Kópavogi þar sem Íslandsmeistarar Breiðabliks töpuðu heimaleik gegn botnliði ÍA.

Blikar voru sterkari aðilinn í upphafi leiks en Skagamönnum tókst að skora þrjú mörk á ellefu mínútna kafla til að jarða heimamenn fyrir leikhlé.

Erik Tobias Sandberg var réttur maður á réttum stað þegar Viktor Jónsson skallaði langa sendingu beint á Erik sem brást ekki bogalistin. Sex mínútum síðar var Ómar Björn Stefánsson búinn að tvöfalda forystuna með skalla eftir fyrirgjöf í kjölfar mikils atgangs í vítateignum eftir hornspyrnu.

Bæði lið vildu fá vítaspyrnu skömmu síðar en fengu ekki. Þess í stað setti Viktor Jónsson þriðja mark leiksins á 39. mínútu, eftir undirbúning frá Ómari Birni. Viktor og Ómar voru því báðir komnir með mark og stoðsendingu.

Blikar reyndu að vakna til lífsins og fengu dæmda vítaspyrnu á 41. mínútu. Tobias Thomsen skoraði úr henni og fékk svo gott færi til að minnka muninn enn frekar í uppbótartíma, en mistókst að skora.

Staðan var því 1-3 í leikhlé og reyndu Blikar að taka stjórn á leiknum í síðari hálfleik en án árangurs. Skagamenn voru hættulegri og fékk Arnór Gauti Jónsson að líta beint rautt spjald fyrir að brjóta af sér sem aftasti varnarmaður.

Skagamenn voru óheppnir að bæta ekki við forystuna fyrr en í uppbótartíma, þegar Gísli Laxdal Unnarsson setti fjórða og síðasta mark gestanna. Lokatölur 1-4, sanngjarn sigur ÍA gegn Íslandsmeisturunum.

Liðin áttust við í níundu umferð íslenska deildartímabilsins. Breiðablik er áfram í þriðja sæti, með 16 stig eftir 9 umferðir, á meðan Skagamenn sitja á botninum með 9 stig. Gríðarlega dýrmætur sigur fyrir ÍA.



ÍBV 2 - 1 FH
0-1 Úlfur Ágúst Björnsson ('28)
1-1 Hermann Þór Ragnarsson ('62)
2-1 Sverrir Páll Hjaltested ('92)

Lestu um leikinn

Í Vestmannaeyjum hafði ÍBV þá betur gegn FH, í leik þar sem gestirnir úr Hafnarfirði leiddu í leikhlé. FH-ingar byrjuðu betur og fengu gott færi áður en Úlfur Ágúst Björnsson tók forystuna. Úlfur vann boltann hátt uppi á velli eftir mislukkaða sendingu frá markverði Eyjamanna og skoraði.

FH fór inn í leikhléð með verðskuldaða 0-1 forystu en Eyjamenn unnu sig inn í leikinn og jöfnuðu metin á 62. mínútu. Hermann Þór Ragnarsson var réttur maður á réttum stað þegar FH-ingum mistókst að hreinsa fyrirgjöf úr vítateignum. Varnarmaður FH skallaði boltann beint á vítateigspunktinn þar sem Hermann Þór tók glæsilega á móti honum áður en hann kláraði með jöfnunarmarki.

FH-ingar fengu tvö dauðafæri eftir jöfnunarmarkið en Björn Daníel Sverrisson og Sigurður Bjartur Hallsson klúðruðu. Eyjamenn fengu einnig dauðafæri á lokakaflanum en hvorugu liði tókst að skora fyrr en komið var í uppbótartíma.

Sverrir Páll Hjaltested var þar á ferðinni þegar hann skoraði eftir langt innkast frá Felix Erni Friðrikssyni og reyndust lokatölur 2-1.

FH-ingar geta verið sárir að snúa aftur heim án stiga eftir að hafa verið aðeins sterkara liðið í Vestmannaeyjum.

Eyjamenn stökkva upp um fjögur sæti á stöðutöflunni með þessum sigri og eiga 11 stig eftir 9 umferðir. FH situr eftir með 10 stig.
Athugasemdir