Fotbolti.net
29.06.26 - 21:46
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

Orð Diomande stangast á við yfirlýsingu Leipzig - „Auðvitað býst ég við því að fara“

Orð Diomande stangast á við yfirlýsingu Leipzig - „Auðvitað býst ég við því að fara“
Canon

Mynd: EPA

Yan Diomande, leikmaður RB Leipzig í Þýskalandi, segist búast við því að fá að fara frá félaginu í sumar þvert á það sem stjórnendur félagsins hafa gefið út.
Diomande er einn eftirsóttasti kantmaður heims og átti frábært tímabil með Leipzig á síðustu leiktíð.

Liverpool hefur verið á eftir Fílabeinsstrendingnum síðustu vikur en hefur nú sagt sig úr baráttunni eftir að Diomande valdi Paris Saint-Germain fram yfir enska félagið.

Leikmaðurinn hefur þegar náð samkomulagi við PSG um kaup og kjör, en það gæti skipt litlu máli þar sem Leipzig vill ekki selja.

Marcel Schafer, yfirmaður íþróttamála hjá Leipzig, sagði við BILD að það kæmi ekki til greina að selja Diomande í sumar. Leikmaðurinn sjálfur segist hins vegar búast við því að fara.

„Í fyrsta lagi er það draumur að spila fyrir þjóð mína og skrifa sögu. Ég er ekki lengur með Instagram og sé því ekkert af þessu, en auðvitað býst ég við að fara. Ég er með umboðsmann og hann sér um restina. Það mikilvægasta núna er HM með þjóð minni og að skrá okkur á spjöld sögunnar,“ sagði Diomande við spurningu norska miðilsins Nettavisen á blaðamannafundi fyrir leik Fílabeinsstrandarinnar og Noregs.

Fjölmiðlar hafa hingað til haldið því fram að Leipzig sé opið fyrir því að fara í viðræður, en að það vilji að minnsta kosti 120 til 130 milljónir evra fyrir leikmanninn.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.