Fotbolti.net
29.06.26 - 21:49
Ívar Björgvinsson

Lárus Orri eftir tapleik: Sú barátta er úr sögunni

Auglýsing
Lárus Orri eftir tapleik: Sú barátta er úr sögunni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

ÍA tók á móti Fram á ELKEM vellinum í lokaleik 12. umferðar Bestu deildar karla og lauk leiknum með 0-2 sigri Fram. Fótbolti.net var á staðnum og heyrði í Lárusi Orra, þjálfara ÍA, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: ÍA 0 - 2 Fram

„Tilfinningin er ekki góð eftir slæmt tap hér í kvöld. Framarar voru betri en við, þeir byrjuðu leikinn mun betur og fyrstu 30 mínúturnar voru þeir mun ákveðnari en við og gerðu hlutina sem þeir gera vel. Okkar besti kafli í leiknum voru þessar seinustu tíu mínútur í fyrri hálfleik þar sem náum aðeins að stíga ofar og koma okkur inn í leikinn.''

Framarar leiddu 0-2 í hálfleik og þar við sat en seinni hálfleikurinn var afar rólegur og lítið af færum sem litu dagsins ljós. 

„Í seinni hálfleik vorum við mun meira með boltann en mest megnis af tímanum án þess að skapa neitt merkilegt. Ég held að ef Fram hefði getað sett upp fullkominn leik þá hefði hann verið nákvæmlega svona og þeir gerðu það vel.''

ÍA byrjaði leikinn afar illa sem er andstæða við hvernig byrjun þeirra gegn KR var en þar var liðið mjög líflegt annað en í kvöld.

„Það er svo margt ólíkt frá þessum tveimur leikjum að það er eiginlega ekki hægt að bera þá saman. Það er samt alveg rétt að krafturinn sem við komum með í þann leik var ekki til staðar hér í dag en hann var í raun Fram megin í dag.''

Tapið í dag var þungt og það býr til stórt bil milli Skagans og Fram, sem eru í 3. sætinu sem gefur Evrópusæti.

„Við töluðum um það fyrir leikinn að þetta væri úrslitaleikur um það hvort við ætluðum að eiga einhvern séns í að vera í Evrópubaráttu, sú barátta er úr sögunni. Við verðum núna bara að einbeita okkur að því að reyna að halda okkur í efri hlutanum og þar eru þrjú til fjögur önnur lið í þeirri baráttu.''

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.